Fotbolti.net
08.11.26 - 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Thomas Frank líklegastur til að taka við Crystal Palace

Thomas Frank líklegastur til að taka við Crystal Palace
Canon

Mynd: EPA

Thomas Frank er líklegastur til að taka við sem stjóri Crystal Palace ef Pierre Sage verður rekinn. Sky Sports greinir frá þessu.

Stjórn Crystal Palace hefur ekki enn tekið ákvörðun en Sage mun líklega missa starfið eftir sjöunda tapið á tímabilinu en liðið tapaði gegn Liverpool í dag. Liðið er á botni úrvalsdeildarinnar.
Frank er fyrrum stjóri Totttenham og Brentford. Hann tók við Tottenham í fyrra eftir frábæran tíma hjá Brentford. Hann var rekinn í febrúar þegar Tottenham var í 16. sæti deildarinnar.

Sage tók við af Oliver Glasner hjá Crystal Palace í sumar en liðið vann Sambandsdeildina á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.