08.11.26 - 19:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tvö rauð og sjö mörk er Brynjólfur skoraði

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brynjólfur Willumsson var á skotskónum þegar Groningen tapaði 4-3 gegn AZ Alkmaar í ótrúlegum leik í hollensku deildinni.
Staðan var 1-1 í hálfleik og Brynjólfur kom liðinu yfir strax í upphafi seinni hálfleiks. AZ náði að jafna metin og markvörður Groningen fékk rautt spjald í lokin og Mexx Meerdink skoraði úr vítaspyrnu og tryggði AZ stigin þrjú í uppbótatíma.

Hans Hateboer, varnarmaður Groningen, fékk síðan rautt spjald í blálokin. Groningen er í 9. sæti með 15 stig eftir 12 umferðir.
Amin Cosic spilaði 67 mínútur þegar Viking vann 5-1 gegn KFUM í norsku deildinni. Viðar Ari Jónsson var ónotaður varamaður í 3-0 sigri HamKam gegn Sarpsborg og Ólafur Guðmundsson var í banni í 3-2 tapi Álasunds gegn Lilleström.
Viking er á toppnum með 62 stig, jafn mörg stig og Bodö/Glimt.
HamKam er í 11. sæti með 30 stig og Álasund er í 14. sæti með 24 stig.
Brynjar Ingi Bjarnason kom inn á sem varamaður í 2-2 jafntefli Sonderjyske gegn Midtjylland. Elías Rafn Ólafsson er á meiðslalistanum hjá Midtjylland. Midtjylland er í 2. sæti með 32 stig eftir 14 umferðir. Liðið er með jafn mörg stig og topplið FCK. Sonderjyske er á botninum með níu stig.