Fotbolti.net
08.11.26 - 13:47
Brynjar Ingi Erluson

Vill ekki sjá Lacey í byrjunarliði Man Utd - „Þetta er ekki rétti tíminn“

Shea Lacey gæti byrjað gegn Aston Villa

Shea Lacey gæti byrjað gegn Aston Villa

Canon

Mynd: EPA

Gary Neville, fyrrum leikmaður Manchester United, telur að nú sé ekki rétti tíminn til að tefla fram ungum og efnilegum leikmönnum. Michael Carrick verði að stilla upp sínu sterkasta liði til að koma United úr þeim vandræðum sem liðið er í.
United hefur ekki unnið deildarleik síðan í ágúst, en fær tækifæri til að binda enda á þá bið þegar liðið tekur á móti Aston Villa síðar í dag.

United er í fallsæti í fyrsta sinn í 40 ár og hefur verið rætt hvort hinn 19 ára gamli Shea Lacey gæti fengið tækifæri í byrjunarliðinu eftir góða innkomu gegn Roma í vikunni en Neville er hins vegar alfarið á móti því.

„Ég tel að þetta sé ekki rétti tíminn til að spila krökkunum. Núna þarf reynslu. Það er ákveðin örvænting fólgin í því að vera með hæfileikaríka krakka og ákveða að setja þá í byrjunarliðið við þessar aðstæður. Núna þarf hann að stilla upp sínu sterkasta liði og leikmennirnir verða að standa undir væntingum.“

„Það er ótrúlegt að sjá United í fallsæti. Þetta er ákveðin áminning um stöðuna, en það sem við sáum á miðvikudagskvöldið var fyrst og fremst knúið áfram af tilfinningum.“

„United náði að skora þetta mark og á Evrópukvöldum höfum við oft séð hvernig tilfinningarnar og stemningin geta fleytt liðum í gegnum erfið augnablik. Andrúmsloftið verður rafmagnað, en það eitt og sér dugar ekki til að koma þér í gegnum alla erfiðleikana,“
sagði Neville.

Hann segir að það yrði mikið áfall fyrir félagið að fara inn í landsleikjahléið í fallsæti.

„Það þarf góða frammistöðu, skýrt leikmynstur og ákveðna aðferðafræði. Sem leikmaður þarftu stöðugleika og skýran leikstíl sem þú getur treyst á. United hefur verið arfaslakt á þessu tímabili og ef liðið fer inn í landsleikjahléið í fallsæti verður staðan orðin verulega örvæntingarfull,“ sagði Neville í lokin.
Gary Neville

Gary Neville

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.