08.12.24 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England í dag - Tveir Lundúnaslagir

Hvað gera lærisveinar Ange gegn einu heitasta liði deildarinnar?

Mynd: Getty Images

Hvað gera lærisveinar Ange gegn einu heitasta liði deildarinnar?

Mynd: Getty Images
Í dag fara fram fjórir leikir í 15. umferð ensku úrvalsdeildarinnar en tveir Lundúnaslagir eru á dagskrá.
Þrír leikir hefjast klukkan 14:00. Fulham tekur á móti Arsenal á Craven Cottage en Arsenal sér þarna tækifæri á að saxa enn frekar á forystu toppliðs Liverpool.
Ipswich Town spilar við Bournemouth á meðan Ruud van Nistelrooy og lærisveinar hans í Leicester spila við Brighton á King Power-leikvanginum.
Klukkan 16:30 er leikur Tottenham og Chelsea. Lærisveinar Ange Postecoglou hafa verið upp og niður á tímabilinu, en eitt má hann eiga að liðið hefur verið að sækja góð úrslit gegn sterkari liðum deildarinnar.
Chelsea fær á sama tíma tækifæri til að sýna hvort liðið sé reiðubúið í toppbaráttu á þessu tímabili en Chelsea er í öðru sæti með 28 stig, eins og Arsenal. Tottenham er á meðan í 11. sæti með 20 stig.
Leikir dagsins:
14:00 Fulham - Arsenal
14:00 Ipswich Town - Bournemouth
14:00 Leicester - Brighton
16:30 Tottenham - Chelsea

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Everton | 10 | +2 | 16 |
| 6 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 7 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 8 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 9 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 10 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 11 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 13 | Newcastle | 9 | -3 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 10 | -9 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |