09.02.24 - 21:57
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Malen og Füllkrug sáu um Freiburg

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Borussia D. 3 - 0 Freiburg
1-0 Donyell Malen ('16 )
2-0 Donyell Malen ('45 )
3-0 Niclas Fullkrug ('87 )
1-0 Donyell Malen ('16 )
2-0 Donyell Malen ('45 )
3-0 Niclas Fullkrug ('87 )
Borussia Dortmund vann öruggan 3-0 sigur á Freiburg á Signal Iduna Park í þýsku deildinni í kvöld.
Miklar tafir voru í leiknum í kvöld. Stuðningsmenn köstuðu tennisboltum inn á völlinn til að mótmæla því að einkaaðilar geti fjárfest í tveimur efstu deildunum í Þýskalandi. Tafirnar reyndust Dortmund vel.
Donyell Malen og Niclas Füllkrug voru eitraðir saman í fremstu víglínu.
Malen skoraði fyrsta mark Dortmund eftir undirbúning Füllkrug á 16. mínútu og var uppskriftin svipuð í öðru markinu, sem kom undir lok fyrri hálfleiks.
Þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum skoraði síðan Füllkrug þriðja markið eftir stoðsendingu Ian Maatsen, sem er á láni frá Chelsea.
Dortmund er í 4. sæti með 40 stig á meðan Freiburg er í 7. sæti með 28 stig og var að tapa þriðja deildarleik sínum í röð.

Bundesliga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Bayern | 8 | +19 | 18 |
| 2 | Dortmund | 8 | +8 | 18 |
| 3 | Freiburg | 8 | +8 | 16 |
| 4 | RB Leipzig | 8 | +11 | 15 |
| 5 | Werder | 8 | +3 | 15 |
| 6 | Leverkusen | 8 | +2 | 13 |
| 7 | Elversberg | 8 | 0 | 13 |
| 8 | Frankfurt | 8 | -5 | 11 |
| 9 | Mainz | 8 | 0 | 10 |
| 10 | Augsburg | 8 | +3 | 9 |
| 11 | Stuttgart | 8 | -1 | 9 |
| 12 | Hoffenheim | 8 | -2 | 9 |
| 13 | Köln | 8 | -3 | 9 |
| 14 | Paderborn | 8 | -3 | 9 |
| 15 | Hamburger | 8 | -12 | 9 |
| 16 | Union Berlin | 8 | -12 | 7 |
| 17 | Schalke 04 | 8 | -5 | 6 |
| 18 | Gladbach | 8 | -11 | 4 |