Ísland spilar vináttulandsleik gegn Mexíkó 26. febrúar á Corregidora leikvanginum í Queretaro í Mexíkó. Leikurinn er spilaður utan alþjóðlegs landsleikjaglugga og því eru leikmenn úr flestum deildum Evrópu ekki til taks. Leikurinn hefst kl. 02:00 að íslenskum tíma aðfaranótt 26. febrúar.
Arnar Gunnlaugsson hefur valið landsliðshópinn fyrir leikinn og má sjá hann hér að neðan. Tuttugu leikmenn fara til Mexíkó. Allir leikmenn í íslenska hópnum nema einn spila á Íslandi. Kolbeinn Þórðarson spilar í Svíþjóð. Einn leikmaður spilar í Lengjudeildinni, en það er Damir Muminovic. Hinir 18 spila í Bestu deildinni.
Gylfi Þór Sigurðsson, markahæsti leikmaður í sögu landsliðsins, er í hópnum í fyrsta sinn í þjálfaratíð Arnars Gunnlaugssonar. Víkingur á flesta fulltrúa í hópnum, eða sex talsins.

Hópurinn
Markverðir
Anton Ari Einarsson - Breiðablik
Viktor Freyr Sigurðsson - Fram
Útileikmenn
Höskuldur Gunnlaugsson - Breiðablik
Karl Friðleifur Gunnarsson - Víkingur R.
Damir Muminovic - Grindavík
Hans Viktor Guðmundsson - KA
Guðmundur Kristjánsson - Stjarnan
Guðmundur Þórarinsson - ÍA
Baldur Kári Helgason - FH
Gylfi Þór Sigurðsson - Víkingur R.
Haukur Andri Haraldsson - ÍA
Kolbeinn Þórðarson - IFK Göteborg
Daníel Hafsteinsson - Víkingur R.
Birnir Snær Ingason - Stjarnan
Hallgrímur Mar Steingrímsson - KA*
Óskar Borgþórsson - Víkingur R.**
Ágúst Orri Þorsteinsson - Breiðablik
Helgi Guðjónsson - Víkingur R.
Emil Atlason - Stjarnan
Jóhann Berg Guðmundsson - Án félags**
*Aron Sigurðarson - KR - dró sig úr hópnum og Hallgrímur kom inn i staðinn
**Aron Elís Þrándarson - Víkingur R. - dró sig úr hópnum og Jóhann kom inn í staðinn
***Valdimar Þór Ingimundarson - Víkingur - dró sig úr hópnum og Óskar kom inn í staðinn
Ísland og Mexíkó hafa fimm sinnum áður mæst í A landsliðum karla - í öllum tilfellum vináttuleikir á erlendri grundu. Fyrstu tveimur viðureignunum lauk báðum með markalausu jafntefli og næstu þremur með mexíkóskum sigri. Liðin mættust síðast í lok maí 2021 í Arlington, Texas þar sem Mexíkó vann 2-1 sigur.
Mexíkó er að undirbúa sig fyrir HM í sumar, liðið er í 16. sæti á heimslista FIFA og Ísland situr í 74. sæti.
Athugasemdir