Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 09. mars 2020 10:52
Magnús Már Einarsson
Engir áhorfendur á leik PSG og Dortmund
Það verða ekki áhorfendur í París á miðvikudag.
Það verða ekki áhorfendur í París á miðvikudag.
Mynd: Getty Images
Leikur PSG og Borussia Dortmund verður leikinn fyrir luktum dyrum á miðvikudagskvöld en yfirvöld staðfestu þetta í dag.

Þetta er gert til að minnka smithættu vegna kórónu veirunnar.

Dortmund leiðir 2-1 fyrir síðari leikinn í 16-liða úrslitum í París.

Leikur Valencia og Atalanta verður einnig leikinn fyrir luktum dyrum í Meistaradeildinni annað kvöld.

Þá er til umræðu að leikur Barcelona og Napoli verði einnig fyrir luktum dyrum.

Þá hafa yfirvöld í Grikklandi staðfest að allir lekir þar í landi verði leiknir fyrir luktum dyrum næstu tvær vikurnar. Það á meðal annars við um leik Olympiakos og Wolves í Evrópudeildinni á fimmtudag.
Athugasemdir
banner
banner