Ómar Ingi: Verðum að gera betur ef þessi staða kemur upp


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er svekktur með það hvernig okkur gekk að skapa marktækifæri miðað við hvað við vorum mikið með boltann," sagði Ómar Ingi Guðmundsson þjálfari HK eftir jafntefli liðsins gegn Vestra í Lengjubikarnum í kvöld.
„Sama hvort við skorum úr þessu víti eða ekki, það breytir samt ekki þessari frammistöðu í þessar 95 mínútur. Þetta er bara deildabikarleikur, æfingamót þannig það skiptir kannski ekki í stóra samhenginu í þróun liðsins hvort við fáum stig eða ekki í dag. Frammistaðan er sú sama," sagði Ómar.
HK spilar í Bestu deildinni í sumar en Vestri spilaði ansi aftarlega í kvöld. Það er ólíklegt að nokkuð lið spili jafn varnarsinnað gegn HK í Bestu deildinni.
„Þetta er kannski líkara því sem var í fyrra en það verður í sumar en við verðum klárlega að gera betur ef sú staða kemur upp,"






