Fotbolti.net
09.04.21 - 14:45
Elvar Geir Magnússon

Getur ekki dæmt El Clasico vegna meiðsla

Antonio Mateu Lahoz.

Antonio Mateu Lahoz.

Canon

Mynd: Getty Images

Antonio Mateu Lahoz getur ekki dæmt El Clasico vegna meiðsla. Real Madrid mætir Barcelona annað kvöld.

Það er mikið í húfi en Real Madrid er í þriðja sæti með 63 stig og Barcelona í öðru með 65 stig. Atletico Madrid er á toppnum.
Lahoz átti að dæma leikinn en hefur þurft að draga sig úr verkefninu vegna meiðsla. Jesús Gil Manzano dæmir leikinn í staðinn.

Lahoz er fremsti dómari Spánverja í dag, hann dæmdi stórleik Bayern München og Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni í vikunni og fékk mikið lof fyrir.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona12+3533
2Real Madrid13+2233
3Atletico Madrid12+1328
4Betis13+527
5Real Sociedad12+122
6Sevilla13-219
7Athletic12+316
8Alaves13016
9Villarreal12+215
10Espanyol13015
11Deportivo13-115
12Racing Santander12-1314
13Celta13-113
14Vallecano12-712
15Getafe12-1012
16Osasuna12-1112
17Valencia13-1112
18Levante12-511
19Elche12-610
20Malaga12-145
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.