Árbær eru nýliðar í 4. deild karla í ár og hafa þeir fengið sóknarmanninn öfluga Pape Mamadou Faye til liðs við sig.
Pape raðaði inn mörkunum með Tindastóli í 3. deildinni í fyrra og verður gaman að fylgjast með honum í 4. deild.
Sóknarmaðurinn spilaði með Árbæ í Mjólkurbikarnum í gær og skoraði eina mark liðsins í 6-1 tapi gegn Reyni Sandgerði.
Pape er fæddur 1991 og hefur undanfarin ár leikið fyrir Þrótt Vogum og Víking Ólafsvík.
Pape á leiki að baki fyrir Víking R., Leikni R., og Fylki í efstu deildum íslenska boltans.
Ljóst er að Pape verður gífurlegur liðsstyrkur í fjórðu deildinni og mun gera andstæðingum sínum lífið leitt.
Athugasemdir