Fotbolti.net
09.05.21 - 21:02
Victor Pálsson

Arteta: Virkuðum stressaðir eftir markið

Arteta: Virkuðum stressaðir eftir markið
Canon

Mynd: Getty Images

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var sáttur með frammistöðu sinna manna í 3-1 sigri á West Brom í kvöld.
West Brom þurfti á stigum að halda gegn Arsenal en eftir tapið er ljóst að liðið er fallið í næst efstu deild.

Arteta segir að spilamennskan hafi verið góð á köflum og gera stigin mikið í Evrópubaráttu hans manna.

„Við þurftum þennan sigur. Það er svolítið síðan við náðum að vinna á heimavelli," sagði Arteta.

„Við skoruðum, þrjú frábær mörk og áttu mjög góða kafla. Þegar við fengum á okkur markið þá virkuðum við stressaðir."

„Við vissum hvað sigur myndi þýða fyrir okkur. Þeir skoruðu upp úr engu og svo köstuðu þeir öllu í áttina að okkur."

„Það eru hlutir sem við gátum gert mun betur. Við munum reyna að vinna hvern einasta leik og sjá hvar við endum. Það eina sem við getum gert er að vinna okkar leiki."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.