Fotbolti.net
09.05.21 - 15:00
Aksentije Milisic

England: Man Utd frestaði titilfögnuði Man City

Menn að kljást.

Menn að kljást.

Canon

Mynd: EPA

<b>Aston Villa 1 - 3 Manchester Utd</b>
1-0 Bertrand Traore ('24 )
1-1 Bruno Fernandes ('52 , víti)
1-2 Mason Greenwood ('56 )
1-3 Edinson Cavani ('87 )
<u>Rautt spjald:</u> Ollie Watkins, Aston Villa ('89)

Annar leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni var viðureign Aston Villa og Manchester United.
Fyrir leikinn var ljóst að ef Aston Villa myndi vinna þá væri Manchester City búið að tryggja sér titilinn.

Man Utd byrjaði leikinn betur og sótti mikið. Luke Shaw og Bruno Fernandes komust báðir í fín færi en náðu ekki að skora. Aston Villa vann sig hægt og rólega betur inn í leikinn.

Fyrsta mark leiksins kom á 24. mínútu og það var Bertrand Traore sem var þar að verki. Hann átti þá skot úr þröngu færi sem söng í samskeytunum fjær. Glæsilegt mark hjá Traore.

Staðan var 1-0 í hálfleik og mættu leikmenn United grimmir til leiks í þeim síðari. Á 52. mínútu braut Douglas Luiz klaufalega á Paul Pogba inn í vítateig og vítaspyrnan réttilega dæmd. Bruno Fernandes steig á punktinn og skoraði af miklu öryggi.

Einungis fjórum mínútum síðar komust gestirnir yfir. Mason Greenwood fór þá illa með Tyrone Mings áður en hann þrumaði knettinum í nærhornið. Smekklega gert hjá þessum efnilega leikmanni.

Aston Villa vildi fá vítaspyrnu stuttu síðar en þá fór boltinn í höndina á Greenwood. Dómari leiksins dæmdi ekkert og VAR var sammála þeirri ákvörðun.

Edinson Cavani hefur verið í frábæru formi upp á síðkastið og hann kom inn á sem varamaður í dag. Á 87. mínútu átti Marcus Rashford sendingu fyrir markið og þar var Cavani mættur og skallaði knöttinn í netið eins og honum einum er lagið.

Þetta mark gulltryggði sigurinn en Ollie Watkins fékk rautt spjald á lokamínútu leiksins. Hann fékk þá sitt seinna gula spjald fyrir dýfu. Harry Maguire, fyrirliði United, þurfti að fara meiddur af velli í síðari hálfleiknum.

United er nú tíu stigum á eftir Man City en United hefur spilað einum leik færra. Aston Villa er í ellefta sæti deildarinnar.
Greenwood skoraði í dag.

Greenwood skoraði í dag.

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Chelsea6+210
6Leeds6+39
7Liverpool5+39
8Everton5+39
9Ipswich Town6-39
10Hull City5+28
11Newcastle508
12Man Utd606
13Nott. Forest5-15
14Aston Villa6-55
15Crystal Palace5-54
16Sunderland6-64
17Bournemouth6-63
18Tottenham6-63
19Coventry5-93
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.