Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 09. júlí 2019 22:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lokuðu fyrir veðmál á að Bruce yrði næsti stjóri Newcastle
Mynd: Getty Images
Veðbankinn Boyle Sports hefur lokað fyrir frekari veðmál á að Steve Bruce verði næsti stjóri Newcastle.

Newcastle hefur ekki tjáð sig opinberlega varðandi stjóramálin en er sagt vera að skoða sig vel um.

Steve Bruce tók við Sheffield Wednesday í janúar síðastliðnum og á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.

Talsmaður veðbankans sagði að bankinn þurfti að loka á veðmál á Bruce þar sem stuðullinn fór úr 50/1 niður í 1/5 á einum sólarhring. Aðrir veðbankar eru enn með þann valmöguleika á að veðja á Bruce sem næsta stjóra Newcastle.

Rafa Benitez samdi við kínverska liðið Dalian Yifang 2. júlí eftir að hafa stýrt Newcastle undanfarin ár með góðum árangri.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner