Ísak Bergmann til West Ham?

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ísak Bergmann Jóhannesson er nafn á blaði enska félagsins West Ham. Á síðunni The West Ham Way er fjallað um ábendingu um að litið sé á Ísak Bergmann sem mögulegan arftaka Mateus Fernandes. Portúgalinn Fernandes, sem er ári yngri en Ísak, var seldur til Tottenham fyrir um 85 milljónir punda á dögunum.
Íslenski landsliðsmaðurinn er leikmaður Köln í Þýskalandi. Hann er 23 ára miðjumaður og hefur sterka tengingu til Englands því hann er fæddur í Birmingham.
Ísak er sonur Jóhannesar Karls Guðjónssonar sem mætti West Ham bæði með Burnley og Leicester á sínum tíma.

Ísak hefur þrátt fyrir ungan aldur þegar spilað 44 landsleiki og Köln greiddi Fortuna Düsseldorf 5,5 milljónir evra fyrir hann síðasta sumar. Ísak skoraði tvö mörk og lagði upp fjögur á sínu fyrsta tímabili hjá Köln og kom alls við sögu í 33 leikjum yfir tímabilið.
Á enska miðlinum segir að sendingargeta sé stærsti styrkleiki Ísaks og segir að hann hafi klárað fleiri sendingar fram á við og skapað fleiri færi (átt fleiri lykilsendingar) að meðaltali í leik en Fernandes gerði hjá West Ham. Ísak var mjög ofarlega í þýsku úrvalsdeildinni í færasköpun miðjumanna.
Sagt er að möguleiki sé fyrir West Ham að ná samkomulagi við Köln. Tim Steidten er í yfirmannsstöðu hjá Köln en hann starfaði áður hjá West Ham sem tæknilegur ráðgjafi. West Ham féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor en Nuno Espirito Santo stýrir liðinu áfram.

Heimild: The West Ham Way

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson