09.11.19 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Telegraaf: Bayern að velja á mili Ten Hag og Tuchel

Ten Hag er talinn líklegur arftaki Kovac.

Mynd: Getty Images

Hollenski miðilinn <i>De Telegraaf</i> heldur því fram að FC Bayern sé að skoða nokkra þjálfara sem mögulega arftaka Niko Kovac og þar séu Thomas Tuchel og Erik Ten Hag efstir á lista.
Ten Hag hefur gert frábæra hluti með Ajax og kom þeim í undanúrslit Meistaradeildarinnar í vor.
Tuchel hefur verið hjá PSG í eitt og hálft ár en hann gerði garðinn frægan sem arftaki Jürgen Klopp hjá Borussia Dortmund.
Hvorugur þeirra yrði tilbúinn til að taka við Bayern á miðju tímabili en þeir væru báðir reiðubúnir til að taka við starfinu næsta sumar, samkvæmt frétt Telegraaf.
Arsene Wenger er einnig inni í myndinni eins og hann greindi sjálfur frá á myndbandi í gær.