Fotbolti.net
09.11.26 - 12:31
Elvar Geir Magnússon

Alisson vill framlengja við Liverpool

Alisson Becker.

Alisson Becker.

Canon

Mynd: EPA

Alisson Becker vill vera áfram hjá Liverpool eftir að núverandi samningur hans rennur út í lok tímabilsins.

Þessi 34 ára brasilíski markvörður kom til félagsins frá Roma árið 2018 fyrir 66,8 milljónir punda og hefur spilað 347 leiki fyrir Liverpool.
„Já, ég vil vera áfram. Ég einbeiti mér að því að spila hvern einasta leik, en í mínum huga er ég ánægður með að vera áfram,. Þetta veltur á mörgum þáttum og ýmsum aðstæðum. En vilji minn vilji er að vera hér áfram, mér líður vel hér og fjölskyldu minni líður líka vel hér," segir Alisson.

„Ég er enn hungraður í titla og vil halda áfram að skila góðri frammistöðu."

Í síðustu viku sagðist Andoni Iraola, stjóri Liverpool, ekki vita hvort þetta yrði síðasta tímabil Alisson hjá félaginu.

Þegar Alisson var spurður hvort hann hefði átt í viðræðum um nýjan samning svaraði hann: „Nei, en umboðsmaður minn er í samtali við félagið.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.