Fotbolti.net
09.11.26 - 09:58
Elvar Geir Magnússon
- Skrifar frá Benidorm

Ekkert verkfall og Ísland flýgur til Búlgaríu á miðvikudag

Möguleiki var á að flugvallarstarfsmenn færu í verkfall.

Möguleiki var á að flugvallarstarfsmenn færu í verkfall.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Íslenska landsliðið kemur saman á Spáni í dag þar sem það verður í stuttum æfingabúðum áður en það flýgur til Búlgaríu síðar í vikunni og mætir heimamönnum í Plovdiv á föstudag.

KSÍ fékk upplýsingar um að möguleiki væri á verkfalli hjá flugvallarstarfsmönnum á miðvikudaginn en þá er áætlað að liðið fljúgi yfir til Búlgaríu.
<b>Landsliðshópurinn -</b> Daníel Leó valinn og Kristian snýr aftur
TENGT EFNI

Landsliðshópurinn - Daníel Leó valinn og Kristian snýr aftur

Nú hafa borist nýjar og góðar fréttir, ekkert verður af verkfallinu svo áætlunin mun halda. Annars hefði íslenska liðið þurft að fljúga út degi fyrir leik, eða á fimmtudaginn.

Ísland er á toppi síns riðils í C-deild Þjóðadeildarinnar en tvær umferðir eru eftir. Fótbolti.net er á Spáni og fylgir íslenska landsliðinu í gegnum allan gluggann.

Fréttin hefur verið uppfærð
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.