Fotbolti.net
09.11.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

FH-ingar vilja gera félagaskiptin varanleg

Miðjumaðurinn Jói Bjarna.

Miðjumaðurinn Jói Bjarna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Erlingur Agnarsson (1998) og Jóhannes Kristinn Bjarnason (2005) voru á láni hjá FH frá Víkingi seinni hluta tímabils. Með þeim fékkst aukin breidd í hópinn, þeir komu inn með reynslu og hjálpuðu liðinu að halda sæti sínu í deildinni.

Erlingur hefur unnið marga titla á sínum ferli en vildi spila meira en hann fékk hjá Víkingi fyrri hluta móts. Hann kom einungis við sögu í fimm leikjum hjá FH, en þeir hefðu orðið fleiri ef ekki hefði verið fyrir meiðsli.

Jóhannes Kristinn spilaði allar mögulegar mínútur sem í boði voru, skoraði eitt mark og lagði upp tvö í tólf leikjum.

FH-ingar vilja halda Víkingunum innan sinna raða en þurfa að ná samkomulagi við Víking um kaup á leikmönnunum.
„Við erum alveg búnir að tala saman, ég og Víkingar. Það er samtal sem er í gangi, ekkert launungarmál að við myndum hafa áhuga á því að gera það að varanlegum félagaskiptum. Það er ekkert komið lengra en það, er bara í ferli."

„Vonandi kemur í ljós í þessum mánuði hvort eitthvað verði af því eða ekki,"
sagði Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, við Fótbolta.net, en rætt var við hann fyrir helgi.
Sóknarmaðurinn Erlingur Agnars.

Sóknarmaðurinn Erlingur Agnars.

Canon

Mynd: BerndsenPhoto

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.