09.11.26 - 15:00
Fótbolti.net
Gummi Ben besti lýsandinn með miklum yfirburðum

Gummi Ben að störfum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gummi Ben að störfum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Benediktsson er besti fótboltalýsandi Íslands en hann var efstur í skoðanakönnun Fótbolta.net með gríðarlegum yfirburðum.
Yfir 2.500 tóku þátt í þessari könnun og hlaut Gummi Ben, sem lýsir hjá Sýn Sport, 61% atkvæða. Næsta verkefni Gumma verður að lýsa landsleik Íslands í Búlgaríu á föstudaginn.
Yfir 2.500 tóku þátt í þessari könnun og hlaut Gummi Ben, sem lýsir hjá Sýn Sport, 61% atkvæða. Næsta verkefni Gumma verður að lýsa landsleik Íslands í Búlgaríu á föstudaginn.
Hörður Magnússon var í öðru sæti með 14% atkvæða.
Hver er besti fótboltalýsandi Íslands:
61% Gummi Ben
14% Höddi Magg
8% Gunni Birgis
6% Kiddi Kjærnested
4% Rikki G
7% Einhver annar
Hver er besti fótboltalýsandi Íslands:
61% Gummi Ben
14% Höddi Magg
8% Gunni Birgis
6% Kiddi Kjærnested
4% Rikki G
7% Einhver annar
