Fotbolti.net
09.11.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Leeds fordæmir kynþáttafordóma í garð Bogle

Leeds fordæmir kynþáttafordóma í garð Bogle
Canon

Mynd: EPA

Leeds United hefur fordæmt kynþáttafordóma sem Jayden Bogle varð fyrir eftir leikinn gegn Tottenham á laugardaginn.

Hann varð fyrir fordómum á samfélagsmiðlum en Leeds vinnur með úrvalsdeildinni í að finna sökudólga. Leeds vill að þeir fái eins harða refsingu og möguleiki er á.
Það var umdeilt atvik í leiknum þar sem Bogle var heppinn að fá ekki rautt spjald.

Hann fór með takkana á undan í Mathys Tel en fékk ekki áminningu. Tel þurfti að fara af velli vegna meiðsla í kjölfarið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.