Fotbolti.net
09.11.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Maguire að kljást við bakmeiðsli

Maguire að kljást við bakmeiðsli
Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick hefur útskýrt hvers vegna Harry Maguire var tekinn af velli í hálfleik í 4-4 jafnteflinu gegn Aston Villa í gær.

Maguire var talinn tæpur fyrir leikinn eftir að hann virtist kveinka sér þegar hann var tekinn af velli gegn Roma í Meistaradeildinni í síðustu viku.
„Hann var slæmur í bakinu. Hann fékk mjög slæman bakverk þegar kannski 10-15 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik," sagði Carrick sem sagðist vonast til að Maguire verði klár eftir landsleikjahléið.

Man Utd heimsækir Liverpool þann 22. nóvember og endurheimtir Lisandro Martínez úr banni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.