09.11.26 - 09:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
- Skrifar frá BenidormPochettino á Old Trafford? - Man Utd gæti lagt fram hátt tilboð

Pochettino er annað hvort líklegastur eða næstlíklegastur til að taka við United hjá veðbönkum þessa stundina.

Mynd: EPA

Murillo orðaður við United.

Mynd: EPA

Reynir United við Ait-Nouri í janúar?

Mynd: EPA

Vitor Roque aftur til Evrópu?

Boubacar Kamara, miðjumaður Chelsea, er á radar Chelsea fyrir næsta sumarglugga, Liverpool er tilbúið að bíða lengur áður en ákvörðun um Ronald Araujo verður tekin og Man Utd gæti lagt fram risatilboð í Murillo. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins. Samantektin er í boði Powerade og það er BBC sem tekur helsta slúðrið saman.
Franski miðjumaðurinn Boubacar Kamara (26) er á lista Chelsea fyrir möguleg kaup næsta sumar. Hann er einnig á óskalista Inter Milan og Al Hilal. Hann er aftur mættur í lið Aston Villa eftir meiðsli. (Fussball News)
Liverpool og Ronald Araujo (27) ætla að bíða þar til í lok tímabils áður en ákveðið verður hvort Liverpool klári 47 milljóna punda kaup á Úrúgvæjanum sem er á láni frá Barcelona. (Sport)
Manchester United gæti verið til í að leggja fram stórt tilboð í Murillo (24) varnarmann Nottingham Forest næsta sumar. (Football Insider)
Ef Man Utd rekur Michael Carrick (45) úr starfi stjóra þá eru Eddie Howe (48) og Julian Nagelsmann (39) líklegir til að taka við. (Manchester Evening News)
En Mauicio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, er nú líklegastur til að taka við samkvæmt veðbönkum. (Standard)
Brentford, Chelsea, Fulham, Manchester City, Newcastle og Tottenham eru á meðal félaga sem fylgjast með franska varnarmanninum Ismaelo Ganiou (21) sem spilar með Lens. (Teamtalk)
Everton eru á undan Sunderland og Coventry í kapphlaupinu um Abdoulaye Doumbia (19) miðjumann Häcken. (Football Insider)
Liverpool, Manchester United og Chelsea eru á meðal úrvalsdeildarfélaga sem fylgjast með Koni de Winter (24) miðverði AC Milan. (Caught Offside)
Everton er hrifið af Kelvin Yeboah sem er sonur Tony Yeboah fyrrum leikmanns Leeds. Everton gæti fengið sóknarmanninn í janúar en Kelvin hefur skorað 18 mörk í 32 leikjum fyrir Minnesota United á tímabilinu. (The Hard Tackle)
Bæði Crystal Palace og Ipswich eru tilbúin að reyna líka við Yeboah (26). (Football Insider)
Everton, Chelsea, Manchester United og Tottenham hafa öll sett sig í samband við Vitor Roque (21) sem er fyrrum leikmaður Barcelona. Palmeiras vill fá 42 milljónir punda fyrir sóknarmanninn. (Bolavip)
Man Utd reyndi að fá Rayan Ait-Nouri (25) í sumar og gæti reynt að fá alsírska bakvörðinn í janúar. (Football Insider)