Fotbolti.net
09.11.26 - 11:05
Elvar Geir Magnússon
- Skrifar frá Benidorm

Snýst ekki bara um að vinna riðilinn heldur líka safna stigum

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísland leikur gegn Búlgaríu ytra á föstudagskvöld og loka svo riðlinum í C-deild Þjóðadeildarinnar með heimaleik við Lúxemborg á Laugardalsvelli næsta mánudag.

Íslenska liðið er í bílstjórasætinu í riðlinum þrátt fyrir að hafa ekki náð að vinna Eistland í síðasta glugga en báðir leikirnir gegn Eistum enduðu með jafntefli.
Staðan í riðlinum

Ísland er ósigrað á toppi riðilsins og gæti tryggt sér sigur í riðlinum á föstudaginn en Lúxemborg og Eistland mætast á sama tíma og strákarnir okkar leika gegn Búlgörum.

Efsta lið riðilsins mun tryggja sér sæti í B-deildinni en liðið sem endar í öðru sæti mun fara í umspil um að komast upp.

En þetta snýst ekki bara um að vinna riðilinn heldur einnig að safna sem flestum stigum því keppnin hefur áhrif á næsta Evrópumót. Undankeppni EM fer fram á næsta ári og verður dregið í riðla í desember. Ef Ísland kemst ekki á EM í gegnum næstu undanleppni gæti opnast bakdyraleið í gegnum Þjóðadeildina.

Liðin sem vinna sinn riðil í Þjóðadeildinni eiga möguleika á að komast í umspil. Sigurlið riðla í A- og B-deild Þjóðadeildarinnar verða á undan í goggunarröðinni á undan sigurliðum í C-deildinni. Stigasöfnun hjá liðum í C-deildinni gæti ráðið úrslitum um hvort liðin komast í umspil.

Eins og staðan er núna er Ísland fyrir aftan hin þrjú toppliðin í C-deildinni í þessari röð. Svartfjallaland og Slóvakía eru með 10 stig hvort og Albanía 9 stig en Ísland aðeins með 8 stig, og því stigalægsta toppliðið í C-deildinni.
Snýst ekki bara um að vinna riðilinn heldur líka safna stigum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.