09.11.26 - 14:11
Enski boltinn
Væri til í að fá Orra Stein í Everton

Orri Steinn Óskarsson.

Mynd: KSÍ

Orri Steinn Óskarsson.

Mynd: KSÍ
Tveir íslenskir sóknarmenn hafa að undanförnu verið orðaðir við enska úrvalsdeildarfélagið Everton. Það eru Andri Lucas Guðjohnsen og Orri Steinn Óskarsson.
Magnús Geir Eyjólfsson, stuðningsmaður Everton, var gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu í gær, og var þar spurður út í þessar sögusagnir.

„Ég væri rosalega mikið til í að fá Orra Stein," sagði Magnús Geir.
„Ég held að hann sé leikmaður sem henti vel David Moyes boltanum. Ég er líka mikill aðdáandi Andra Lucas en ég held að hann henti síður inn í þetta kerfi hjá Moyes."
Báðir hafa þeir verið sjóðandi heitir fyrir framan markið að undanförnu.
„Þú þarft ótrúlega sterkan karakter til að meika það hjá Everton. Einhvern tímann sagði Gylfi Sig mér það að ef það gengur illa fyrsta hálftímann, þá eru aðdáendurnir komnir á bakið á þér. Það er rosalega erfitt. Þeir fara á völlinn til að fá útrás fyrir allt sem gengur á móti þeim í lífinu. Leikmennirnir fá svoleiðis að finna fyrir því. Stuðningsmenn Everton voru tilbúnir að ryðjast inn á völlinn bera (Thierno) Barry út á flugvöll í fyrra," sagði Magnús Geir en Barry hefur verið flottur á þessu tímabili og staðið sig vel fyrir framan markið.
„Ég held að Orri Steinn væri góð viðbót við þetta púsl."
Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan og á hlaðvarpsveitum.