Yfirferðin með Elízu Gígju: Umfangsmikil krossbandsrannsókn hafin í Englandi

Vivianne Miedema er að snúa aftur

Mynd: Man City

Beth Mead

Mynd: EPA

Leah Williamson

Mynd: EPA

Sandy Baltimore skoraði fyrir Chelsea

Mynd: EPA

Lauren James er meidd

Mynd: EPA

Bunny Shaw er óstöðvandi

Mynd: EPA

Alessia Russo er að spila vel

Mynd: EPA

Eva Navarro var grátlega nálægt því að skora sigurmarkið

Mynd: EPA

Vivianne Miedema er að snúa aftur

Mynd: Man City

FA og WSL í Englandi hafa sett af stað rannsókn sem mun rannsaka hvers vegna krossbandsslit eru jafn algeng hjá konum og raun ber vitni og hvað sé hægt að gera til að reyna að koma í veg fyrir slík meiðsli. Rannsóknin er Doktorsrannsókn sem framkvæmd verður í Imperial College í London. Simon Ball sérfræðingur í aðgerðum á hnjám mun framkvæma rannsóknina undir leiðsögn Hanna Lehtovirta og munu klúbbar í WSL og WSL2 taka þátt.
Fyrri rannsóknir hafa sýnt að fótboltakonur eru tvisvar til sex sinnum líklegri til þess að slíta krossbönd en karlkyns kollegar þeirra og hafa leikmenn á borð við Vivianne Miedema, Beth Mead, Leah Williamson og Sam Kerr lent í meiðslunum síðustu ár ásamt ýmsum örðum leikmönnum um allan heim.
Ein sú umfangsmesta
Rannsóknin verður ein sú umfangsmesta sem hefur verið gerð á krossbandsmeiðslum kvenna en stefnt er á að sameina vísindaleg gögn og upplifanir leikmanna og þjálfarateyma til þess að komast að eins nákvæmri niðurstöðu og hægt er. Leikmenn frá deildunum tveimur munu allir fá boð til að taka þátt í rannsókninni ásamt sjúkrateymi og þjálfurum en rannsóknin, eins og áður segir, verður tvíþætt.
Fyrst verður gögnum safnað saman um meiðslasögu, æfinga- og leikjaálag, hormóna, næringar- og sálfræðilega þætti leikmanna. Gögn frá leikmönnum sem hafa slitið krossband frá 18-19 tímabilinu verða skoðuð og borin saman við gögn frá leikmönnum sem ekki hafa lent í krossbandsslitum. Seinna skrefið eru svo viðtöl við leikmenn og þjálfara þar sem viðhorf til krossbandsslita og núverandi aðferðum og þjálfun sem notað er til að koma í veg fyrir krossbandsslit.
Von rannsakenda er að niðurstöðurnar muni hjálpa til við að móta framtíð fyrirbyggingu meiðsla, endurhæfingar og velferð fótboltakvenna.
Chelsea missteig sig
Chelsea, sem hefur verið á fljúgandi siglingu undanfarið, missteig sig í leik gegn Everton um helgina sem endaði 1-1. Sandy Baltimore kom Chelsea yfir á 28. mínútu eftir vel útfærða hornspyrnu en aðeins fimm mínútum síðar skoraði Lucy Bronze, sem lagði upp á Baltimore, mjög klaufalegt sjálfsmark eftir fyrirgjöf Yuka Momiki.
Lauren James var ekki með Chelsea í leiknum en hún er frá vegna meiðsla. Það stefnir í að hún verði frá í allt að fimm vikur en hún er að eiga við meiðsli aftan í læri. Óvíst er hvort hún geti verið með Englandi í umspilsleikjum fyrir HM í Brasilíu en þær mæta Úkraínu í byrjun næsta mánaðar.
Manchester City á toppinn
Manchester City nýtti sér það að Chelsea hafi tapað stigum og endureimtuðu toppsætið. Þær fengu West Ham í heimsókn og voru í engum vandræðum með þær. Bunny Shaw, sem hefur verið frábær í upphafi tímabils, hélt uppteknum hætti og skoraði þrennu og þær Aoba Fujino og Iman Beney skoruðu svo mark á mann. 5-0 sigur í Manchester og þær bláklæddu tylla sér á toppinn með tveggja stiga forystu á Chelsea.
London City Lionesses halda áfram að reyna að ná í skottið á Manchester City og Chelse en þær unnu sannfærandi 4-1 sigur á Birmingham. Þær skoruðu hvert glæsimarkið á fætur öðru en fólk á vellinum var eiginlega hætt að trúa sínum eigin augum þegar hvert ótrúlega skotið á fætur öðru hafnaði í netinu.
Er Arsenal að finna taktinn?
Birmingham er í fallsæti með sex stig, tveimur stigum á eftir Liverpool sem mættu Arsenal um helgina. Mikið var talað um slakt gengi Arsenal í byrjun tímabils en liðið ætlaði sér að vera í toppbaráttu. Þær virðast vera að finna taktinn og þá sérstaklega Alessia Russo sem skorar í hverjum leik um þessar mundir. Hún kom Arsenal yfir á 9. mínútu með einu af sínum helstu vopnum þegar hún tímasetti hlaupið sitt inn á teiginn vel, fékk hann hjá vítapunktinum og kláraði þéttingsfast í fjærhornið eftir góða fyrirgjöf frá Emily Fox. Beata Olsson jafnaði fyrir Liverpool eftir að þær fóru leið eitt, einn langur í gegn og hún kláraði vel fram hjá Misa í markinu. Russo var þó ekki hætt og skoraði sigurmark Arsenal rétt fyrir hálfleikinn. Aftur átti hún vel tímasett hlaup í átt að vítapunktinum og fékk fyrirgjöf frá hægri, nú var það frá Lisa Baum, sem hún stangaði í netið.
Auðvelt hjá Barcelona sem fyrr
Umferðin á Spáni klárast í kvöld en þar eru bæði Real Madrid og Barcelona búin að spila. Barcelona fékk Madrid CFF, sem eru í þriðja sæti, í heimsókn og voru heldur betur ekki í vandræðum með það verkefni. Þær komust yfir á 39. mínútu með marki frá Esmee Brugts og bættu svo reglulega við forystuna og voru komnar í 5-0 á 79. mínútu þegar Claudia Pina skoraði. Inés Konan kom inn á og skoraði sárabótarmark fyrir gestina á 82. mínútu og þar við sat.
Real Madrid misstigu sig er þær heimsóttu Athletic Club í dramatískum leik. Eva Navarro skoraði fyrir Real Madrid á 85. mínútu og þær virtust vera að sigla sigrinum heim en varamaðurinn Ane Campos jafnaði á 92. mínútu eftir klaufagang hjá Merle Frohms í marki Madrídinga. 1-1 því lokatölur og Real Madrid eru komnar fjórum stigum frá Barcelona og aðeins fimm mörk í plús á meðan Barcelona er með 36 mörk.

Beth Mead

Mynd: EPA

Leah Williamson

Mynd: EPA

Sandy Baltimore skoraði fyrir Chelsea

Mynd: EPA

Lauren James er meidd

Mynd: EPA

Bunny Shaw er óstöðvandi

Mynd: EPA

Alessia Russo er að spila vel

Mynd: EPA

Eva Navarro var grátlega nálægt því að skora sigurmarkið

Mynd: EPA
