Fotbolti.net
09.12.23 - 16:48
Aksentije Milisic

Byrjunarlið Aston Villa og Arsenal: Vinnur Villa fimmtánda heimaleikinn í röð?

Byrjunarlið Aston Villa og Arsenal: Vinnur Villa fimmtánda heimaleikinn í röð?
Canon

Mynd: EPA

Klukkan 17:30 fer fram stórleikur á Villa Park en þá fær Aston Villa Arsenal í heimsókn. Fyrir leikinn í dag hefur Villa unnið fjórtán heimaleiki í röð.

Arsenal vann dramatískan sigur á Luton í miðri viku á meðan Aston Villa gerði sér lítið fyrir og skellti Englandsmeisturunum í Manchester City. Takist Villa að vinna í dag þá setur liðið met en þetta væri í fyrsta skiptið í sögu félagsins sem það myndi ná að vinna fimmtán heimaleiki í röð.

Unai Emery, stjóri Villa, gerir enga breytingu frá sigurleiknum frábæra gegn Man City og heldur sig við sama lið.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, gerir eina breytingu en Oleksandr Zinchenko kemur inn fyrir Jakub Kiwior.

Aston Villa: Martinez; Konsa, Carlos, Torres, Digne; Bailey, Kamara, Luiz, McGinn; Tielemans; Watkins.
(Varamenn:Marschall, Cash, Moreno, Lenglet, Diaby, Zaniolo, Duran, Dendoncker, Ramsey.)

Arsenal: Raya; White, Saliba, Gabriel, Zinchenko; Odegaard, Rice, Havertz; Saka, Jesus, Martinelli.
(Varamenn: Ramsdale, Nketiah, Kiwior, Cedric, Trossard, Jorginho, Nelson, Elneny, Walters.)

Byrjunarlið Aston Villa og Arsenal: Vinnur Villa fimmtánda heimaleikinn í röð?
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.