Fotbolti.net
09.12.24 - 16:06
Elvar Geir Magnússon

Coote rekinn sem dómari í ensku úrvalsdeildinni (Staðfest)

Coote hefur misst starf sitt sem dómari.

Coote hefur misst starf sitt sem dómari.

Canon

Mynd: Getty Images

David Coote hefur verið rekinn úr starfi sem dómari í ensku úrvalsdeildinni.

Coote komst í fréttirnar eftir að myndband fór í dreifingu þar sem hann fór ófögrum orðum um Jurgen Klopp. Í kjölfarið birtist svo annað myndband þar sem hann sást neyta eiturlyfja. Einnig var fjallað um að hann hefði verið að plana eiturlyfjapartí á meðan hann var að starfa á leik.
Hegðun Coote hefur verið í rannsókn og einnig ásakanir um að hann hafi rætt um að gefa gula spjaldið fyrir leik. Coote sagði að þó hann hafi átt í vandamálum í einkalífinu hefðu þau aldrei haft áhrif á ákvarðanir innan vallarins.

Myndbandið af honum með hvítt duft á hótelherbergi er sagt hafa verið tekið á Evrópumóti landsliða þar sem Coote starfaði við dómgæslu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.