Fotbolti.net
10.01.21 - 17:08
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Ítalía: Napoli rétt marði Udinese - Lazio og Verona með sigra

Ítalía: Napoli rétt marði Udinese - Lazio og Verona með sigra
Canon

Mynd: Getty Images

Lazio og Napoli nældu sér í mikilvæg stig í Evrópubaráttunni er þau spiluðu útileiki í dag.
Lazio heimsótti Parma og var staðan markalaus þrátt fyrir mikkla yfirburði Lazio, allt þar til Luis Alberto skoraði loks á 55. mínútu.

Felipe Caicedo tvölfadaði forystuna tólf mínútum síðar og var sigur Lazio ekki í hættu.

Napoli átti þó talsvert flóknari leik gegn Udinese þar sem Lorenzo Insigne skoraði úr vítaspyrnu eftir korter og jafnaði Kevin Lasagna skömmu síðar.

Heimamenn spiluðu flottan bolta og voru betri stóran hluta leiksins en það voru gestirnir frá Napolí sem stóðu uppi sem sigurvegarar. Tiemoue Bakayoko gerði sigurmarkið á 90. mínútu.

Napoli er í fimmta sæti eftir sigurinn, með 31 stig eftir 16 umferðir. Lazio er með 28 stig.

Að lokum hafði Verona betur gegn nýliðum Crotone og er spútnik liðið nálægt Evrópubaráttunni, með 27 stig.

Parma 0 - 2 Lazio
0-1 Luis Alberto ('55 )
0-2 Felipe Caicedo ('67 )

Udinese 1 - 2 Napoli
0-1 Lorenzo Insigne ('15 , víti)
1-1 Kevin Lasagna ('27 )
1-2 Tiemoue Bakayoko ('90 )

Verona 2 - 1 Crotone
1-0 Nikola Kalinic ('16 )
2-0 Federico Dimarco ('25 )
2-1 Junior Messias ('55 )
Ítalía: Napoli rétt marði Udinese - Lazio og Verona með sigra
Canon

Mynd: Getty Images

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter6+1016
2Lazio6+716
3Roma6+1114
4Cagliari6+313
5Milan6+612
6Juventus6+411
7Como6+311
8Napoli6+410
9Frosinone6+210
10Atalanta609
11Sassuolo608
12Torino6-27
13Lecce6-66
14Bologna6-25
15Udinese6-44
16Monza6-64
17Genoa6-64
18Parma6-64
19Fiorentina6-74
20Venezia6-110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.