Fotbolti.net
10.01.25 - 21:52
Ívan Guðjón Baldursson

Þýskaland: Leverkusen vann fimm marka slag í Dortmund

Þýskaland: Leverkusen vann fimm marka slag í Dortmund
Canon

Mynd: EPA

Dortmund 2 - 3 Leverkusen
0-1 Nathan Tella ('1)
0-2 Patrick Schick ('8)
1-2 Jamie Gittens ('12)
1-3 Patrick Schick ('19)
2-3 Serhou Guirassy ('79, víti)
Borussia Dortmund tók á móti Bayer Leverkusen í stórleik í þýska boltanum sem fór afar fjörlega af stað.

Nathan Tella tók forystuna fyrir gestina eftir 24 sekúndur þar sem hápressa Leverkusen skilaði sér strax með marki. Dortmund byrjaði með boltann en náði ekki að koma honum framfyrir miðju.

Tékkneski markaskorarinn Patrick Schick tvöfaldaði forystuna á áttundu mínútu eftir frábæran undirbúning frá Piero Hincapié sem spretti upp vinstri kantinn. Varnarmenn Dortmund voru steinsofandi og leyfðu Schick að skora af stuttu færi.

Markaregnið hélt svo áfram fjórum mínútum síðar þegar Jamie Bynoe-Gittens minnkaði muninn fyrir heimamenn með laglegu marki úr erfiðu færi. Staðan var því orðin 1-2 eftir tólf mínútna leik en skömmu síðar skoraði Schick annað mark til að tvöfalda forystu Leverkusen á ný. Aftur skoraði hann af stuttu færi, í þetta skiptið eftir fyrirgjöf frá Jeremie Frimpong frá hægri vængnum.

Leverkusen gerði vel að róa leikinn niður eftir þetta mark en bæði lið fengu þó færi til að bæta mörkum við leikinn. Serhou Guirassy var á sínum stað í byrjunarliði Dortmund og tókst honum að minnka muninn aftur niður í eitt mark þegar hann steig á vítapunktinn á 79. mínútu.

Nær komust heimamenn í Dortmund þó ekki og urðu lokatölur 2-3 fyrir ríkjandi Þýskalandsmeistara Leverkusen.

Leverkusen er í öðru sæti deildarinnar eftir þennan sigur, með 35 stig eftir 16 umferðir. Liðið er búið að sigra níu leiki í röð í öllum keppnum og er einu stigi á eftir toppliði FC Bayern.

Dortmund er í sjötta sæti, tíu stigum á eftir Leverkusen en aðeins tveimur stigum frá meistaradeildarsæti.
Þýskaland: Leverkusen vann fimm marka slag í Dortmund
Canon

Mynd: Getty Images

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern7+1917
2Dortmund7+817
3Freiburg7+713
4Leverkusen7+413
5RB Leipzig7+912
6Werder7+112
7Mainz7+310
8Elversberg7-310
9Augsburg7+49
10Hoffenheim709
11Hamburger7-109
12Köln7-38
13Paderborn7-38
14Frankfurt7-78
15Stuttgart7-36
16Schalke 047-36
17Union Berlin7-126
18Gladbach7-113
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.