Fotbolti.net
10.04.21 - 10:10
Elvar Geir Magnússon

Líkleg byrjunarlið Tottenham og Man Utd

Líkleg byrjunarlið Tottenham og Man Utd
Canon

Mynd: Guardian

Klukkan 15:30 á morgun mætast Tottenham og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni.

Manchester United er í fínum málum í topp fjórum og jafntefli yrðu ágætis úrslit fyrir þá en Tottenham er í sjötta sæti og þarf nauðsynlega á öllum þremur stigunum að halda.


Toby Alderweireld og Serge Aurier voru ekki með Tottenham um síðustu helgi en Guardian spáir því að þeir komi báðir inn í byrjunarliðið.

Bakverðirnir Ben Davies og Matt Doherty eru enn fjarri góðu gamni.

Ole Gunnar Solskjær vonast til þess að Luke Shaw verði klár þrátt fyrir að hafa farið af velli í hálfleik í sigrinum gegn Granada.

Marcus Rashford heldur áfram að spila í gegnum ökklameiðsli en Anthony Martial gæti verið frá út tímabilið.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.