Fotbolti.net
10.04.21 - 09:00
Victor Pálsson

Varane efstur á óskalista Neville

Varane efstur á óskalista Neville
Canon

Mynd: Getty Images

Raphael Varane eru draumakaup Gary Neville til Manchester United en hann svaraði þessari spurningu á Twitter í gær.
Neville var spurður hvaða leikmann hann myndi taka til Man Utd ef hann fengi aðeins að velja einn.

Það var hinn 27 ára gamli Varane sem varð fyrir valinu en hann leikur með Real Madrid á Spáni.

Þar hefur Varane gert góða hluti en hann samdi við félagið árið 2011 frá Lens í heimalandinu, Frakklandi.

Varane er einnig gríðarlega mikilvægur í franska landsliðinu sem vann HM 2018 í Rússlandi.

Man Utd hefur oft verið orðað við leikmanninn en ólíklegt er að Real muni selja á næstunni.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.