Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   fös 10. maí 2024 20:51
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Inter burstaði nýliðana
Markaþurrð Martínez er lokið
Markaþurrð Martínez er lokið
Mynd: EPA
Frosinone 0 - 5 Inter
0-1 Davide Frattesi ('19 )
0-2 Marko Arnautovic ('60 )
0-3 Tajon Buchanan ('77 )
0-4 Lautaro Martinez ('80 )
0-5 Marcus Thuram ('84 )

Ítalíumeistarar Inter unnu 5-0 stórsigur á nýliðum Frosinone í 36. umferð Seríu A í kvöld.

Aðeins eitt mark var skorað í fyrri hálfleiknum en það gerði Davide Frattesi á 19. mínútu eftir fyrirgjöf Marcus Thuram.

Frosinone átti margar fínar tilraunir og reyndi oft á Yann Sommer í markinu en Inter tók öll völdin þegar hálftími var eftir.

Marko Arnautovic tvöfaldaði forystuna með fyrsta marki sínu síðan í febrúar áður en kanadíski landsliðsmaðurinn Tajon Buchanan gerði þriðja markið sautján mínútum síðar.

Markaþurrð Lautaro Martínez lauk þremur mínútum síðar, en hann hafði ekki skorað í sjö leikjum á undan. Þetta var hans 24. mark á tímabilinu.

Thuram kláraði síðan dæmið með laglegri vippu á 84. mínútu og þar við sat.

Inter með 92 stig á toppnum en Frosinone í hættu á að falla niður í B-deildina. Frosinone er í 16. sæti með 32 stig, aðeins tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Atalanta 0 0 0 0 0 0 0 0
2 Bologna 0 0 0 0 0 0 0 0
3 Cagliari 0 0 0 0 0 0 0 0
4 Como 0 0 0 0 0 0 0 0
5 Empoli 0 0 0 0 0 0 0 0
6 Fiorentina 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Genoa 0 0 0 0 0 0 0 0
8 Inter 0 0 0 0 0 0 0 0
9 Juventus 0 0 0 0 0 0 0 0
10 Lazio 0 0 0 0 0 0 0 0
11 Lecce 0 0 0 0 0 0 0 0
12 Milan 0 0 0 0 0 0 0 0
13 Monza 0 0 0 0 0 0 0 0
14 Napoli 0 0 0 0 0 0 0 0
15 Parma 0 0 0 0 0 0 0 0
16 Roma 0 0 0 0 0 0 0 0
17 Torino 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Frosinone 38 8 11 19 44 69 -25 35
18 Udinese 0 0 0 0 0 0 0 0
19 Sassuolo 38 7 9 22 43 75 -32 30
19 Venezia 0 0 0 0 0 0 0 0
20 Verona 0 0 0 0 0 0 0 0
20 Salernitana 38 2 11 25 32 81 -49 17
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner