Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 10. júní 2021 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bestur í 2. deild: Halli með hann í rear naked choke
Hörður Sveinsson (Reynir Sandgerði)
Hörður Sveinsson
Hörður Sveinsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Reynir Sandgerði vann Völsung 5-1 um síðustu helgi í 5. umferð 2. deildar. Hörður Sveinsson skoraði tvö marka Sandgerðinga í heimasigrinum. Hörður var valinn besti leikmaður umferðarinnar í nýjasta þætti Ástríðunnar.

„Það er gamli maðurinn, Hörður Sveinsson, sem er leikmaður umferðarinnar í boði ICE," sagði Sverrir Mar Smárason.

„Þvílíkt sem hann er drjúgur. Hann er út um allt á Suðurnesjunum. Hann er örugglega að skora þrítugasta tímabilinu í röð. Þvílíkt mikill fengur fyrir Reyni að halda honum og hafa hann svo lengi innan sinna raða," bætti Sverrir við.

„Það er okkar maður, hann klikkar ekki. Eldist eins og vín og er duglegur. Hann er að raða þeim inn með Reyni og svo sé ég hann á golfvellinum. Hann er út um allt. Hann hefur glímt við erfið meiðsli en alltaf kemur hann aftur og er bara geggjaður," sagði Stefán Birgir Jóhannesson.

„Halli er með hann í lás, með í hann rear naked choke og heldur honum í liðinu," bætti Stefán við.

Hörður er 38 ára gamall og hefur skorað þrjú mörk í þremur leikjum í sumar.

Það eru fjórir leikir í 2. deild í dag og mætir Reynir liði Þróttar.

6. umferð
2. deild karla í kvöld
19:15 Þróttur V.-Reynir S. (Vogaídýfuvöllur)
19:15 KV-Haukar (KR-völlur)
19:15 Magni-KF (Grenivíkurvöllur)
19:15 Njarðvík-ÍR (Rafholtsvöllurinn)

laugardag 12. juní
14:00 Völsungur-Leiknir F. (Vodafonevöllurinn Húsavík)
14:00 Kári-Fjarðabyggð (Akraneshöllin)
Ástríðan - Hvaða lið verða eiginlega í toppbaráttu?
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner