Danska stórliðið Bröndby er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að kaupa Arnar Bjarka Gunnleifsson af Breiðabliki.
Arnar er fæddur árið 2010 og verður 16 ára í nóvember. Hann má ekki ganga formlega í raðir félagsins fyrr en eftir að hann verður 16 ára. Hann er U17 landsliðsmaður sem hefur þegar spilað 12 leiki fyrir unglingalandsliðin og skorað í þeim sex mörk.
Arnar er fæddur árið 2010 og verður 16 ára í nóvember. Hann má ekki ganga formlega í raðir félagsins fyrr en eftir að hann verður 16 ára. Hann er U17 landsliðsmaður sem hefur þegar spilað 12 leiki fyrir unglingalandsliðin og skorað í þeim sex mörk.
Hann hefur verið undir smásjá félaga í Danmörku og farið á reynslu til bæði Nordsjælland og Midtjylland, en niðurstaðan er sú að hann mun fara til Bröndby.
Arnar Bjarki er mjög efnilegur, hefur komið við sögu í níu leikjum til þessa á tímabilinu og spilaði hálftíma í síðasta leik gegn Fram. Hann skrifaði undir sinn fyrsta samning við Breiðablik í vetur.
Hann er sonur fyrrum landsliðsmannsins Gunnleifs Vignis Gunnleifssonar og eldri bróðir hans, U19 landsliðsmaðurinn Gunnleifur Orri Gunnleifsson, er uppalinn hjá Breiðabliki en spilar í dag með Grindavík.
Bröndby endaði í 4. sæti dönsku deildarinnar á liðnu tímabili. Félagið hefur ellefu sinni unnið danska meistaratitilinn og sjö sinnum bikarinn.
Síðasti Íslendingurinn til að spila með aðalliði Bröndby er landsliðsmaðurinn Hjörtur Hermannsson. Hólmbert Aron Friðjónsson, Stefán Gíslason, Hannes Þ Sigurðsson og Þorbjörn Atli Sveinsson hafa einnig gert það. Bröndby keypti í vetur jafnaldra Arnars Bjarka af HK, markvörðinn Marten Leon Jóhannsson, og gerði hann þriggja ára samning við danska félagið.


