Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
   mið 10. júní 2026 23:23
Ívar Björgvinsson
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding tók á móti Stjörnunni í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla, leiknum lauk með 3-1 sigri heimamanna. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Guðmund Kristjánsson, leikmann Stjörnunnar, eftir leikinn.


Lestu um leikinn: Afturelding 3 -  1 Stjarnan

„Burtséð frá stöðunni í deildinni þá ætlum við okkar að fara langt í öllum keppnum þannig þetta eru gríðarleg vonbrigði. Við spiluðum fyrstu 35 mínúturnar bara flott og svo einhvern veginn missum við aðeins momentumið og þeir ganga aðeins á lagið. Svo byrjum við seinni hálfleik allt í lagi og svo fáum við mark á okkur og tvö strax og þetta riðlast aðeins hjá okkur eftir það.''

Leikur Stjörnunnar hrynur eftir um 60 mínútna leik og fá þeir á sig þrjú mörk eftir að hafa leitt í tæpan klukkutíma.

„Í þessum mörkum þá verður eitthvað sem riðlast og missum menn út úr stöðum og það verður vitlaus talning og þeir ná að nýta sér það. En mér fannst við vera í fínum málum fyrir það.''

Hvað vill Gummi segja við stuðningsmenn sem eru farnir að missa trúna á þjálfaranum og komnir með nóg af gengi liðsins á þessu tímabili?

„Ég skil að þeir séu svekktir því að gengið hefur ekki verið nógu gott en bara biðla til þeirra að halda áfram að mæta. Ef það er einhvern tímann sem við þurfum á stuðningsmönnunum að halda þá er það þegar á móti blæs. Ef við föllum niður á lægra level þá vonum við að þeir geri það ekki og við reynum að rífa okkur upp og vonumst eftir eins miklum stuðningi og hægt er.''


Slapp
banner
banner
banner