Afturelding tók á móti Stjörnunni í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla, leiknum lauk með 3-1 sigri heimamanna. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Jökul Elísabetarson, þjálfara Stjörnunnar, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Afturelding 3 - 1 Stjarnan
„Þetta er bara mjög þungt. Leikurinn var kaflaskiptur og við vorum mjög góðir þegar við vorum on it fyrsta hálftímann og svo í byrjun seinni hálfleiks. Við vorum ekkert lélegir á köflum og verjumst bara illa í þremur momentum sem snýr leiknum við og svo bara náum við ekki að brjóta þá.''
Í útsendingu RÚV gagnrýndi Höddi Magg skiptingu sem Jökull gerði á 62. mínútu leiksins, í stöðunni 0-1 fyrir Stjörnunni, þar sem hinn 14 ára gamli Arnar Breki var settur inn á.
„Ég er ekkert að fara að taka þátt í þannig umræðu, Arnar Breki er bara ungur og efnilegur leikmaður sem kom bara flott inn. AÞað er bara agjörlega galið að fara að eiga þá umræðu hér. Fólk gagnrýnir alltaf skiptingar ef eitthvað fer úrskeiðis alveg sama hvernig þær eru. Hann er bara hluti af fullorðins liðiog verður að geta tekið því.''
Örvar Eggerts vildi fá vítaspyrnu í aðdraganda þriðja marks Aftureldingar. Hvað fannst Jökli um það atvik?
„Ég gat ekki betur séð en að hann hafi verið sleginn í andlitið en ég nenni ekki að tjá mig um það.''
Hvernig sér Jökull framhaldið fyrir sér og hvað vill hann segja við stuðningsmenn?
„Nú þurfa menn bara að vera stórir og það er ekki tími til að fara að vorkenna sér. Við þurfum bara að mæta með meiri orku á þriðjudaginn. Það er voða lítið sem ég get sagt við stuðningsmennina. Þeir mættu mjög vel í dag og það er bara leitt að við séum ekki að borga það til baka. Þeir eru búnir að vera frábærir.''























