Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
banner
   mið 10. júní 2026 22:58
Ívar Björgvinsson
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding tók á móti Stjörnunni í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla, leiknum lauk með 3-1 sigri heimamanna. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Magnús Má Einarsson, þjálfara Aftureldingar, eftir leikinn.


Lestu um leikinn: Afturelding 3 -  1 Stjarnan

„Þetta var frábær liðsheild og trú hjá okkur. Það var skita að lenda undir eftir nokkrar mínútur en við vorum búnir að tala um það fyrir leik um að vera klárir í að bregðast við því sem kemur til okkar og við gerðum það svo sannarlega. Ég hafði allan tímann trú á að við myndum snúa þessu við.''

Með sigrinum er Afturelding komið í undanúrslit í bikarnum í fyrsta skipti í sögu félagsins.

„Við fórum í 8-liða úrslit í fyrra og svekktir að fara ekki lengra þá en nú erum við komnir í undanúrslit sem er frábært en við viljum meira, við viljum fara í úrslitaleikinn þannig ef við erum búnir að vinna fjóra leiki í þessari keppni þá erum við búnir með fjögur borð ef þetta væri tölvuleikur og það eru tvö borð eftir og við viljum vinna næsta borð í leiknum og komast í endakallinn sem er Laugardalsvöllurinn''

Hinn 41 árs gamli Birkir Már skoraði tvö mörk og spilaði á hægri kantinum í fjarveru Elmars Kára.

„Hann varðist frábærlega og hann kann það svo við vissum að hann gæti gert það, svo vissum við að hann spilaði kant þegar hann var yngri og gæti laumað inn marki en ég bjóst kannski ekki við tveimur frá honum. Hann skorar víst alltaf þegar það er Megavika þannig að það er geggjað að það sé Megavika núna, hrikalega ánægður með tímasetninguna á leiknum og þetta var bara skrifað í skýin.''


Slapp
banner
banner