Afturelding er komið í undanúrslit bikarsins í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir 3-1 endurkomusigur á Stjörnunni í kvöld. Hinn 41 árs gamli Birkir Már Sævarsson skoraði tvennu.
„Er ótrúlega glaður með leikinn hjá liðinu og sigurinn. Ótrúlega flott liðsframmistaða og mér fannst við með þokkalega stjórn á leiknum fyrir utan fyrstu tuttugu mínúturnar," sagði Birkir Már.
„Er ótrúlega glaður með leikinn hjá liðinu og sigurinn. Ótrúlega flott liðsframmistaða og mér fannst við með þokkalega stjórn á leiknum fyrir utan fyrstu tuttugu mínúturnar," sagði Birkir Már.
Lestu um leikinn: Afturelding 3 - 1 Stjarnan
„Þetta lið er að skrifa söguna eiginlega á hverju ári. Ég er þakklátur með að fá að taka þátt í þessu verkefni með Aftureldingu."
Birkir Már spilaði á kantinum en hann er vanur að vera í bakverðinum. Hann var léttur í viðtali hjá RÚV eftir leikinn og sagði að hann skoraði alltaf þegar það er Megavika hjá Dominos sem er í gangi núna.
„Ótrúlega vel. Það er langt síðan maður hefur spilað á kantinum. Ég hef spilað þar áður, það eru örugglega svona tuttugu ár síðan. Maður þurfti aðeins að komast inn í leikinn og rifja upp gamla kanttakta," sagði Birkir Már.






















