Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
   mið 10. júlí 2019 22:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sigurvin: Mér finnst mitt lið betra en þeirra
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
„Fyrst og fremst mjög svekktur, vorum 2-0 yfir og eigum að sigla slíkri forystu heim," sagði Sigurvin Ólafsson eftir 2-3 tap KV gegn Kórdrengjum í toppbaráttuslag í 3. deild karla í kvöld.

„Ég hef séð okkur spila betur en þetta en andstæðingarnir eru sterkir. Eftir að hafa komist í 2-0 yfir koma tvö hálfgerð slysamörk, ég veit ekki hvort að það seinna hafi verið mark. Svo er þetta bara "fifty-fifty" og ræðst á einu horni."

Fjögur stig skilja efstu fjögur liðin af í deildinni og mikil spenna á toppnum.

„Ég held að toppbaráttan verði spennandi fram á lokadag."

KV hefur aðeins fengið eitt stig í síðustu tveimur leikjum og var Sigurvin spurður út í hvort hann hefði áhyggjur af gengi liðsins.

„Í dag var þetta mjög naumt gegn liðinu sem á að vera langbesta liðinu á pappírunum, þó mér finnist mitt lið reyndar betra. Það er ekkert "panikk" hjá okkur, við erum í toppstandi," sagði Sigurvin að lokum.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner