Fotbolti.net
10.09.19 - 21:38
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu mörkin: 34 ára Ronaldo skoraði fjögur

Cristiano Ronaldo fagnar marki í kvöld

Cristiano Ronaldo fagnar marki í kvöld

Canon

Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo, einn besti knattspyrnumaður heims, skoraði fjögur mörk er Portúgal vann Lithaén 5-1 í undankeppni EM í kvöld.
Ronaldo, sem er 34 ára gamall, gerði eitt mark í síðasta landsleik gegn Serbíu en gerði gott betur en það í kvöld.

Hann skoraði fyrsta markið úr vítaspyrnu áður en slök markvarsla hjá markverði Litháen gaf honum annað markið.

Hann fullkomnaði þrennu sína svo með marki af stuttu færi áður en fjórða markið kom á 76. mínútu. Bernardo Silva lagði upp tvö mörk fyrir Ronaldo en hægt er að sjá öll mörkin hér fyrir neðan.

Hann er nú kominn með 93 mörk í 160 leikjum fyrir Portúgal en hann nálgast Ali Daei sem skoraði 109 mörk fyrir Íran á þrettán ára landsliðsferli sínum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.