Fotbolti.net
10.10.22 - 11:40
Elvar Geir MagnússonFótbolti.net

Sindri Kristinn eftirsóttur - Sagður á blaði hjá KA og KR

Sindri Kristinn Ólafsson, markvörður Keflavíkur.

Sindri Kristinn Ólafsson, markvörður Keflavíkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 á laugardaginn var farið yfir fréttir og slúður úr íslenska boltanum.

Á dögunum var fjallað um að FH hefði áhuga á Sindra Kristni Ólafssyni, markverði Keflavíkur, en hann verður samningslaus eftir tímabilið.

Sagt er að KA og KR hafi einnig áhuga á að fá Sindra í sínar raðir.
„Ef KA hefur áhuga þá hlýtur hann að fara þangað," segir Tómas Þór Þórðarson en KA tekur þátt í Evrópukeppni á næsta tímabili.

Sindri er 25 ára gamall og hefur leikið 17 leiki fyrir yngri landslið Íslands. Hann gekk upp úr yngri flokkum Keflavíkur.

Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

<b>Útvarpsþátturinn</b> - Harka og hræringar í fallbaráttunni í Bestu

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.