Ítalía: Kean með þrennu fyrir Fiorentina - De Gea lagði upp


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Fiorentina er á miklu skriði í ítölsku deildinni en liðið vann sjötta leik sinn í röð í dag.
Moise Kean fór hamförum þegar liðið fékk Verona í heimsókn. Hann kom liðinu yfir snemma leiks en Verona jafnaði metin eftir tæplega tuttugu mínútna leik.
Kean bætti öðru markinu við eftir klukkutima leik og innsiglaði sigurinn í uppbótatíma eftir langa sendingu fram völlinn frá David de Gea. Albert Guðmundsson er áfram á meiðslalistanum hjá Fiorentina.
Það gengur illa hjá Roma en liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum sínum í deildinni.
Liðið tapaði gegn Bologna í dag en Bologna var að vinna þriðja leik sinn í röð eftir erfiða byrjun á tímabilinu.
Fiorentina 3 - 1 Verona
1-0 Moise Kean ('4 )
1-1 Suat Serdar ('18 )
2-1 Moise Kean ('59 )
3-1 Moise Kean ('90 )
Roma 2 - 3 Bologna
0-1 Santiago Castro ('25 )
1-1 Stephan El Shaarawy ('63 )
1-2 Riccardo Orsolini ('66 )
1-3 Jesper Karlsson ('77 )
2-3 Stephan El Shaarawy ('82 )
