Fotbolti.net
10.11.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Fjögur ár síðan Real gekk jafn vel

Fjögur ár síðan Real gekk jafn vel
Canon

Mynd: EPA

Real Madrid er að gera frábæra hluti undir stjórn José Mourinho og vann áttunda leikinn sinn í röð í öllum keppnum um helgina. Stórveldið heimsótti Valencia og skóp þægilegan þriggja marka sigur.
Mourinho: Bið um að þeir setji okkur ekki í slíkar aðstæður aftur
TENGT EFNI

Mourinho: Bið um að þeir setji okkur ekki í slíkar aðstæður aftur

Real er þar með búið að vinna alla leiki sína á tímabilinu í öllum keppnum nema tvo. Liðið tapaði fyrir Real Betis og Atlético Madrid í september en hefur síðan þá unnið átta leiki í röð.

Rúmlega fjögur ár eru liðin síðan Real Madrid vann síðast átta leiki í röð. Þá lék liðið undir stjórn Carlo Ancelotti en síðan þá hafa Xabi Alonso og Álvaro Arbeloa gert misheppnaðar tilraunir til að stýra stórveldinu.

„Strákarnir þurfa hvíld," sagði Mourinho eftir sigurinn gegn Valencia. „Vonandi ákveður La Liga ekki að stríða okkur aftur með þessu ótrúlega leikjaálagi sem við þurftum að spila undir þessa vikuna."

Arda Güler og Kylian Mbappé komust á blað ásamt fyrirliðanum Federico Valverde í sigrinum í Valencia. Mourinho var spurður út í Brasilíumennina Vinícius Júnior og Endrick að leikslokum, en Vini hefur átt lélega byrjun á tímabili og er í leikbanni í La Liga á meðan Endrick hefur fengið lítið af tækifærum með ógnarsterku liði Real Madrid.

„Liðsheildin skiptir mestu máli og Vinícius mun fá sinn spiltíma þegar hann snýr aftur. Endrick á skilið að fá fleiri tækifæri og ég vona að hann fái að spila í landsleikjahlénu. Ég verð mjög ánægður ef (Carlo) Ancelotti lætur hann spila með brasilíska landsliðinu."

Eftir markið sem Mbappé skoraði er hann kominn með 17 mörk í 16 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.

Þess má geta að Mbappé var valinn besti leikmaður október mánaðar í La Liga og Mourinho besti þjálfarinn.
Fjögur ár síðan Real gekk jafn vel
Canon

Mynd: EPA

Fjögur ár síðan Real gekk jafn vel
Canon

Mynd: EPA

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona12+3533
2Real Madrid12+2130
3Atletico Madrid12+1328
4Betis12+526
5Real Sociedad12+122
6Sevilla12-218
7Athletic11+416
8Villarreal12+215
9Deportivo12+115
10Racing Santander12-1314
11Celta12013
12Alaves12-213
13Espanyol12-112
14Vallecano11-612
15Getafe12-1012
16Osasuna12-1112
17Levante12-511
18Elche12-610
19Valencia12-129
20Malaga12-145
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.