Fotbolti.net
10.11.26 - 20:10
Brynjar Ingi Erluson

Loris Karius til Bayern?

Loris Karius til Bayern?
Canon

Mynd: EPA

Þýskalandsmeistarar Bayern München hafa hafið leit að nýjum markverði þar sem allt bendir til þess að Manuel Neuer leggi hanskana á hilluna eftir tímabilið.
Neuer, sem er fertugur, hætti með þýska landsliðinu í annað sinn eftir heimsmeistaramótið í sumar og miklar líkur eru á að þetta verði hans síðasta tímabil með Bæjurum.

Neuer hefur glímt við þrálát meiðsli aftan í kálfa undanfarin ár og meiddist nýlega á nýjan leik. Þau meiðsli munu halda honum frá keppni næstu tvo mánuðina.

Samkvæmt Sky hefur Bayern þegar hafið leit að markverði í hans stað og eru þeir Bernd Leno og Loris Karius meðal þeirra sem koma til greina.

Leno er aðalmarkvörður Fulham en lék áður með Arsenal á Englandi. Karius hefur hins vegar fundið sig aftur hjá Schalke eftir erfiðan tíma hjá Liverpool, Besiktas og Newcastle United.

Hvorugur þeirra yrði þó fenginn til Bayern sem aðalmarkvörður, enda lítur félagið á Jonas Urbig sem framtíðarmarkvörð sinn. Leno eða Karius yrði því fenginn til að styðja við Urbig og veita honum samkeppni um stöðuna.
Loris Karius til Bayern?

Loris Karius til Bayern?

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.