10.11.26 - 20:27
Brynjar Ingi Erluson
Pochettino vill taka við Man Utd

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Argentínski þjálfarinn Mauricio Pochettino hefur mikinn áhuga á að taka við Manchester United ef Michael Carrick verður látinn taka pokann sinn. Frá þessu greinir Times í kvöld.
Stjórnarmenn United eru mættir til Mónakó þar sem þeir munu funda með Sir Jim Ratcliffe, hluteiganda félagsins, á morgun samkvæmt BBC. Á fundinum verður framtíð Carrick hjá félaginu rædd.
Líklegasta niðurstaðan er að Carrick verði látinn taka pokann sinn, en einnig verður rætt hvort hægt sé að styrkja þjálfarateymið og veita Englendingnum meiri aðstoð.
Verði Carrick rekinn mun United reyna að fá Pochettino til félagsins, en hann stýrir bandaríska landsliðinu í dag og er stutt síðan hann framlengdi samning sinn þar.
Það myndi kosta United um átta milljónir punda að losa Pochettino undan samningi, auk þess sem félagið þyrfti að greiða fyrir að fá aðra meðlimi þjálfarateymis Argentínumannsins til sín.
Times segir Pochettino hafa mikinn áhuga á starfinu og að hann sé reiðubúinn að taka við af Carrick.
Pochettino hefur lengi viljað snúa aftur í enska boltann, en hann hefur áður stýrt Chelsea, Tottenham og Southampton í úrvalsdeildinni.
Hann náði sérstaklega góðum árangri með Tottenham og kom liðinu meðal annars í úrslit Meistaradeildarinnar árið 2019, þar sem það tapaði fyrir Liverpool. Þá stýrði hann Tottenham einnig til úrslita í enska deildabikarnum árið 2015.