Fotbolti.net
10.11.26 - 06:40
Elvar Geir Magnússon

Tom Brady slítur tengslum við Birmingham

Birmingham þakkar Tom Brady ftrur,

Birmingham þakkar Tom Brady ftrur,

Canon

Mynd: EPA

NFL-goðsögnin Tom Brady hefur slitið tengslum við Birmingham City, en liðið situr á toppi Championship-deildarinnar.

Brady vann Ofurskálina sjö sinnum, sem er met, en hann gerðist minnihlutaeigandi í Birmingham í ágúst 2023 þegar hann hóf viðskiptasamband við eigendur enska félagsins.

Brady var meðal annars í ráðgjafahlutverki hjá Birmingham.
„Birmingham City færir Tom Brady innilegar þakkir fyrir framlag hans og óbilandi stuðning við félagið undanfarin þrjú ár. Það var sannarlega frábært að fá einstakling með reynslu og ástríðu á borð við Tom til liðs við félagið. Við hlökkum til að halda áfram að byggja ofan á þann grunn sem lagður hefur verið," segir í tilkynningu Birmingham.

Brady var leikstjórnandi og var þrívegis valinn verðmætasti leikmaður NFL-deildarinnar. Hann lagði skóna á hilluna í febrúar 2023 eftir 23 tímabil í deildinni. Hann vann sex Ofurskálar með New England Patriots og einn með Tampa Bay Buccaneers.

Hann kveður Birmingham á meðan liðið situr í efsta sæti Championship-deildarinnar með 29 stig eftir 15 leiki, en liðið er efst á markatölu.


Tom Brady slítur tengslum við Birmingham
Canon

Mynd: EPA

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.