10.11.26 - 19:47
Brynjar Ingi Erluson
Tveir berjast um að taka við tíunni af Messi

Hver tekur tíuna?

Mynd: EPA

Nico Paz er líklegastur

Mynd: EPA

Hver tekur tíuna?

Mynd: EPA
Tveir leikmenn koma til greina í baráttunni um treyju númer tíu hjá argentínska landsliðinu, en það er ESPN sem greinir frá.
Lionel Messi lagði landsliðsskóna á hilluna í síðasta mánuði og verður treyjan ekki notuð fyrr en ákveðið hefur verið hver sé verðugur þess að taka við henni.
Tían á sér mikla sögu hjá Argentínu, ekki aðeins vegna Messi heldur einnig Diego Maradona. Tveir af bestu fótboltamönnum allra tíma hafa borið númerið og því fylgir mikil ábyrgð að taka við því.
Lionel Scaloni, þjálfari argentínska landsliðsins, hefur gefið sér góðan tíma til að ákveða hver sé tilbúinn að axla þá ábyrgð. Samkvæmt ESPN koma tveir leikmenn til greina, þeir Nico Paz hjá Como og Lautaro Martínez hjá Inter.
Paz er 22 ára gamall sóknartengiliður sem hefur farið á kostum með Como undir stjórn Cesc Fabregas. Hann er talinn eiga bjarta framtíð fyrir sér og hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína.
Martínez hefur hins vegar þegar sannað sig í fremstu röð með Inter á Ítalíu, þótt frammistaða hans með argentínska landsliðinu hafi oft sætt gagnrýni.
Enginn mun klæðast treyju númer tíu í komandi landsleikjaverkefni, en búist er við að framtíð númersins ráðist fyrir landsleikina í mars.