Fotbolti.net
10.12.23 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson

Einkunnir dagsins: Mykolenko, Son og Wilson bestir

Einkunnir dagsins: Mykolenko, Son og Wilson bestir
Canon

Mynd: Getty Images

Það fóru fjórir leikir fram í ensku úrvalsdeildinni í dag og gáfu fréttamenn Sky Sports leikmönnum einkunnir.
Úkraínski bakvörðurinn Vitaliy Mykolenko var besti maður vallarins í frábærum 2-0 sigri Everton gegn Chelsea, þar sem hann fær 8 í einkunn hjá Sky fyrir sitt framlag. Miðjumaðurinn öflugi Abdoulaye Doucouré var einnig meðal bestu manna leiksins og fær hann 8 í einkunn alveg eins og hinn efnilegi Lewis Dobbin, sem kom inn af bekknum seint í leiknum og innsiglaði sigurinn í uppbótartíma.

Það var enginn einn leikmaður hjá Chelsea sem þótti arfaslakur, þar sem allir leikmenn liðsins fá ýmist 5 eða 6 í einkunn fyrir sinn þátt í tapinu.

Tottenham rúllaði þá yfir Newcastle í stórleik dagsins og var suður-kóreski fótboltasnillingurinn Son Heung-min bestur á vellinum. Hann gaf tvær stoðsendingar og skoraði svo úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur í 4-1 sigri.

Destiny Udogie, Pedro Porro, Brennan Johnson, Dejan Kulusevski og Richarlison áttu einnig góðan dag og fengu 8 í einkunn frá Sky.

Bernardo Silva, Phil Foden og Jack Grealish voru bestir í sigri Man City á útivelli gegn Luton Town, ásamt Thomas Kaminski markverði Luton sem átti stórleik.

Að lokum tókst Fulham að slátra West Ham og var Harry Wilson bestur þar, þrátt fyrir að hafa komið inn af bekknum í hálfleik í stöðunni 3-0. Hann skoraði og lagði upp í 5-0 sigri.

Lukasz Fabianski, Vladimir Coufal og Kurt Zouma voru verstu leikmenn dagsins með 4 í einkunn.

Everton: Pickford (7), Young (5), Tarkowski (7), Branthwaite (7), Mykolenko (8), Harrison (6), Gueye (6), Garner (7), McNeil (7), Doucoure (8), Calvert-Lewin (6).
Varamenn: Patterson (6), Onana (6), Beto (6), Dobbin (8)

Chelsea: Sanchez (5), James (5), Disasi (6), Badiashile (6), Cucurella (6), Caicedo (6), Fernandez (5), Palmer (6), Gallagher (6), Mudryk (5), Broja (5).
Varamenn: Colwill (6), Sterling (5), Jackson (5), Petrovic (5), Maatsen (6)



Tottenham: Vicario (7), Porro (8), Romero (7), Davies (7), Udogie (8), Sarr (7), Bissouma (7), Johnson (8), Kulusevski (8), Richarlison (8), Son (9).
Varamenn: Hojbjerg (6), Lo Celso (7), Skipp (6), Gil (6), Donley (6).

Newcastle: Dubravka (5), Trippier (4), Schar (5), Lascelles (5), Livramento (5), Miley (6), Guimaraes (6), Joelinton (6), Almiron (6), Gordon (6), Isak (6).
Varamenn: Wilson (7), Longstaff (6), Hall (6), Ritchie (6), Krafth (6).



Luton: Kaminski (8); Mengi (6), Lockyer (6), Bell (6); Doughty (7), Barkley (8), Nakamba (6), Giles (6); Brown, Adebayo (7), Townsend (7)
Subs: Lokonga (6), Morris (5)

Man City: Ederson (6); Walker (6), Dias (7), Ake (7), Gvardiol (6); Rodri (7), Kovacic (6), Bernardo (8); Foden (8), Alvarez (7), Grealish (8)
Varamenn: Stones (6), Nunes (6)



Fulham: Leno (8), Castagne (7), Adarabioyo (8), Bassey (7), Robinson (7), Palhinha (8), Cairney (7), Iwobi (7), Pereira (8), Willian (7), Jimenez (8).
Varamenn: Wilson (8), Vinicius (7), Ballo (6), Cordova-Reid (6), Reed (6)

West Ham: Fabianski (4), Coufal (4), Zouma (4), Aguerd (5), Cresswell (5), Soucek (5), Ward-Prowse (6), Fornals (5), Bowen (6), Kudus (6), Paqueta (5).
Varamenn: Emerson (6), Mavropanos (6), Mubama (5), Ogbonna (5), Benrahma (5).
Einkunnir dagsins: Mykolenko, Son og Wilson bestir
Canon

Mynd: EPA

Einkunnir dagsins: Mykolenko, Son og Wilson bestir
Canon

Mynd: Getty Images

Einkunnir dagsins: Mykolenko, Son og Wilson bestir
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.