Fotbolti.net
11.01.21 - 15:00
Elvar Geir Magnússon

Segir að Cavani verði mikilvægur seinni hluta tímabils

Edinson Cavani.

Edinson Cavani.

Canon

Mynd: Getty Images

Úrúgvæski sóknarmaðurinn Edinson Cavani er búinn að afplána þriggja leikja bann og Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, segir að hann verði mikilvægur það sem eftir er af tímabilinu.

<i>„Edinson hefur æft vel,"</i> segir Solskjær. <i>„Ég er ánægður með að fá hann aftur. Hann verður okkur mikilvægur það sem eftir er af tímabilinu."</i>

Cavani fór í umdeilt bann vegna skrifa á Instagram þar sem hann skrifaði til félaga síns 'Gracias Negrito'. Orð sem enska knattspyrnusambandið túlkaði sem kynþáttafordóma.
Manchester United mætir Burnley á morgun en Rauðu djöflarnir geta komist í toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar með því að forðast tap.

Paul Pogba og Eric Bailly tóku ekki að fullu þátt í æfingu í dag en Luke Shaw og Victor Lindelöf gerðu það.

Á sunnudaginn á Manchester United stórleik gegn Liverpool en margir bíða spenntir eftir þeirri viðureign.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Leeds10+214
9Bournemouth9+112
10Tottenham10-112
11Newcastle10-312
12Aston Villa9-312
13Hull City10011
14Ipswich Town9-411
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd9-57
19Crystal Palace9-127
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.