Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, segir að heppnin hafi verið með liðinu í 1-0 sigri á Barnsley í kvöld.
Tammy Abraham gerði eina mark Chelsea í þessum bikarslag en hann bjargaði einnig á línu í seinni hálfleik.
Markvörðurinn Kepa Arrizabalaga var einnig fínn í viðureigninni og varði vel í fyrri hálfleiknum.
„Heppnin var með okkur í tvígang. Kepa bjargaði okkur í fyrri hálfleik og Tammy í þeim seinni," sagði Tuchel.
„Við vorum í erfiðleikum í dag en svona er þetta stundum í bikarnum. Ég vil ekki vera of strangur við strákana."
„Við gerðum margar breytingar og það vantaði aðeins upp á taktinn og sjálfstraust. Við getum klárlega gert betur."
Athugasemdir